Fjöldi þeirra sem hefur prófað kannabis hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 1997
Samkvæmt könnunum sem Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur við Háskóla Íslands hefur gert í samstarfi við Félagsvísindastofnun háskólans hefur um helmingur fólks á aldrinum 18-29 ára prófað kannabisefni. Þetta kom meðal annars fram í erindi sem Helgi hélt á morgunverðarfundi á vegum samstarfshópsins Náum áttum á Grand hóteli í Reykjavík 8. febrúar 2017.
Fyrir 20 árum sögðust 19% hafa prófað kannabisefni, 20% árið 2002, 25% árið 2013 og 30% árið 2015.
Fjöldi þeirra sem segist hafa notað kannabis tíu sinnum eða oftar hefur líka aukist úr 4% árið 1997 í 6% árið 2002. Átta prósent höfðu árið 2013 prófað efnið og tíu prósent í hitteðfyrra. Helgi telur að þetta sé hópur sem hafi notað efnið á einhverjum tímapunkti af og til.
Þá hefur verið spurt um hvort kannabis hafi verið notað á síðustu sex mánuðum fyrir mælinguna. Það fjölgar í þeim hópi úr rúmu einu prósenti árið 1997 í tæp fimm prósent árið 2015.
Neysla algengasta fíkniefnisins er því býsna algeng, segir Helgi. Hún einkennist mest af fikti, tilraunamennsku og félagsneyslu meðal yngra fólks. Neyslan sé yfirleitt tímabundin og hætti með hækkandi aldri. Þannig sé kannabisneysla meðal þeirra sem komnir eru yfir fertugt óveruleg.
Sjá frétt af morgunverðarfundinum á mbl.is hér.
Sjá upptöku af erindi Helga hér.
Helgi Gunnlaugsson from Samband islenskra sveitarfelag on Vimeo.